Jæja....það er að verða dálítið langt síðan
maður bloggaði seinast.....er ekki alveg að nenna
því.
En ætla að setja inn svona það helsta sem hefur
gerst núna nýlega og sem ég man eftir:
*Ég er orðin 19 ára og komin með ökuskírteini sem
gildir til ársins 2058
*Ég hélt upp á afmælið í bústað á
Ytri-Vík....vona að allir sem komu hafi skemmt sér alveg ágætlega
þar
*Það var djammað alveg fullt í
páskafríinu.
*Elva systir sá einmitt um meiri hlutann af
djamminu þá
*Sumardagurinn fyrsti var í gær og núna snjóar
úti, ég er ekki mjög sátt við það.
*Fór á X-B "djamm" á miðvikudaginn þar sem var
boðið upp á pizzu, bjór, kók og skemmtiatriði
*Svo er ég bara búin að vera í skólanum, hanga
með vinum og vinna smá.
Það sem er svo að fara að gerast er:
*Skólaslit bráðum
*Rhodos eftir 43 daga held ég....ég og Aníta
verðum í viku
*Danmörk 18.júní til 4. júlí, til að sjá Elvu
útskrifast
En já þetta er svona það helsta.....þarf að fara
að finna mér einhverja góða og skemmtilega vinnu, langar svo að
hætta í Hagkaup...er alveg komin með gubbuna
Ef þið vitið um
einhvern skemmtilegan stað sem ég get sótt um á og fengið vinnu þá
endilega látið mig vita
Annars ætla ég bara að segja þetta gott
núna.......bleble